Rene Muré Signature Gewurztraminer 2011

Alsace-vínin eru stórkostleg matarvín og eru stundum – og ekki af tilviljun þegar horft er á landakortið og sagan lesin – eins konar millistig á milli þurru frönsku vínanna og hinna arómatísku þýsku.Og enginn af Alsace-þrúgunum er arómatískari en Gewurztraminer.

Þetta er svo sannarlega arómatískt vín, hvít blóm, rósir og sætur austrænn lyche-ávöxtur í nefi, nokkuð feitt í munni, mjúkt með mildri sætu, án þess þó að vera „sætt“. Vín sem þarf mat við hæfi, feitan fisk með góðri sósu, t.d. lúðu eða lax, bragðmikinn ost eða jafnvel foie gras.

2.599 krónur. Það kemur manni alltaf á óvart hvað maður fær hrikalega mikið fyrir peninginn þegar Alsace er annars vegar. Frábær kaup og hálf viðbótarstjarna fyrir samspil verðs og gæða.

Deila.