Fyrir rúmum þrjátíu árum festi Mariana-fjölskyldan, bandarísk fjölskylda af ítölskum ættum, kaup á kastalanum Poggio alle Mure og tilheyrandi landi í Montalcino í Toskana. Fjölskyldan hafði byggt upp mikið vínveldi í Bandaríkjunum í gegnum víninnflutning en tók þar með ákvörðun um að gerast einnig stórtæk í vínframleiðslu. Hún réði færustu sérfræðinga heims til að rækta upp vínekrur og finna réttu afbrigðin af þrúgunum og á nú í dag eitt virtasta vínhús Brunello-svæðisins, Castello Bafni. Auk þess hefur Banfi í gegnum árin fest kaup á ekrum og vínhúsum víðar í Toskana og Ítalíu og framleiðir mikið af góðum og frambærilegum vínum.
Með því að smella hér má sjá umfjallanir okkar um margvísleg vín frá Banfi.
Þann 7. maí næstkomandi verður efnt til mikillar smökkunar á vínum Banfi. Smökkunin hefur fengið heitið Tuscan Experience og er haldin í samvinnu Banfi og Bakkusar, sem er umboðsaðili fyrirtækisins hér á landi.
Sex fulltrúar frá Banfi munu koma hingað til lands af þessu tilefni þar á meðal Cristina Mariani en hún stýrir Banfi í dag ásamt frænda sínum James.
Hefur þú áhuga á að koma á smökkunina? Sendu þá póst á bakkus@bakkus.is