Það hefur lengi loðað við Riesling-þrúguna að hana sé erfitt að rækta með góðum árangri utan heimahaganna í norðurhluta Evrópu.Smám saman hafa víngerðarmenn víða um heim hins vegar verið að ná tökum á þessari heillandi þrúgu sem stundum er kölluð drottning hvítvínanna.
Í Chile hafa víngerðarmenn verið að uppgötva stöðugt ný svæði, bæði í norður- og suðurhluta landsins og vínin frá Chile verða fjölbreyttari fyrir vikið. Þetta Riesling-vín frá Cono Sur er t.d. ræktað í Bio-Bio sem er við syðstu mörk víngerðarinnar í Chile.
Magnaður Riesling miðað við verð og sameinar um markt ferskleika Nýja heimsins og klassík hins gamla. Í nefni þurrkaður sítrus, sætur, greip og mandarínur blómaangan en einnig vottur af steinolíu. Þétt, mild sæta en næg sýra til að gefa víninu líf og brakandi ferskleika. Reynið þetta vín t.d. með asískum mat. T.d. asískum fiskibollum með kókos-chillisósu.
2.395. Ótrúlega gott verð fyrir þetta vín sem gefur því hálfa viðbótarstjörnu.