Domaine Gustave Lorentz er um tveggja alda gamalt vínhús í bænum Bergheim í Alsace í Frakklandi sem sérhæfir sig í framleiðslu lífrænt ræktaðra vína.
Það á t.d. við um þetta hvítvín úr þrúgunni Pinot Gris. Vínið hefur ávaxtaríka angan, græn, þroskuð epli í bland við suðræna ávexti, mangó og melónu. Þurrt í munni, létt og fínlegt, ágætlega ferskt, með örlitlum votti af sætu í ávextinum. Þægilegt vín.
3.179 krónur.