Montecillo Crianza 2009

Vínhúsið Montecillo í Rioja á Spánin hefur verið í miklum metum hjá íslenskum neytendum allt frá því að þau komu fyrst á markað hér fyrir tæpum tveimur áratugum. Það var einmitt þetta vín, Crianza-vínið með rauða miðanum, sem var kveikjan að vinsældum Montecillo-vínanna. 2009 árgangurinn var mjög fínn í Rioja og það sýnir sig í þessu ´vini.

Viður, ferskur jafnt sem sviðinn í neif, nýbökuð jólakaka, mildur stjörnuanís, dökk ber. Vel uppbyggt, góð, fersk sýra, tannískt. Flott Crianza.

1.999 krónur. Mjög góð kaup.

Deila.