Breiddin hjá Canepa

Canepa í Chile var stofnað á fyrri hluta síðustu aldar af ítalskri innfllytjendafjölskyldu frá Genoa og leggur fyrirtækið enn rækt við hinn ítalska uppruna sinn. Á dögunum var hér staddur Manuel Infante frá Canepa og hélt hann smökkun á vínum fyrirtækisins á Centrum Hotel í Reykjavík.

Flestir þekkja líklega Classic-línuna frá Canepa sem hefur verið fáanleg í vínbúðunum um nokkurt skeið en bráðum eru einnig væntanleg vín úr Novisimo-línunni þar fyrir ofan. Carmenere og Cabernet Novisimo sem voru smökkuð á Centrum lofa góðu, vel gerð og kröftug vín í mjög hagstæðum verðflokki.

Þá var þarna boðið til smökkunar Reserva-vín úr blöndunni Sangiovese og Carmenere, vægast sagt óvenjuleg blanda og var þetta fyrsta Sangiovese-vínið frá Chile sem mig rekur minni til að hafa smakkað. Athyglisvert vín með ríkjandi Sangiovese og verður gaman að sjá hvernig það þróast á næstu árum.

Genovino Carignan var athyglisverðasta vínið í smökkuninni, verulega massað og þétt vín með spennandi bragðprófíl. Toppvínin Finisimo Cabernet og Magnificum, sem bæði byggja á Cabernet Sauvignon, voru í hörkuformi. Dökk, djúp og bragðmikil, vel strúktúreruð og öflug. Magnificum 2007 bar af, dökkt, kryddað, með mentol og cassis í nefi. Enn tannískt og hart.

Vínin sem ekki eru til í vínbúðunum má panta í gegnum þessa vefverslun hér og fá afhent í vínbúðunum.

Deila.