Campo Viejo er stórt vínhús í Rioja. Gran Reserva-vín eru orðin fullþroskuð og þau þarf að geyma að lágmarki í tvö ár á tunnu og þrjú ár á flösku áður en þau fara á markað. Vilji menn þroskuð vín eru þetta yfirleitt mjög góð kaup, enda búið að geyma vínin fyrir mann við kjöraðstæður.
Þroskað á lit, vanillusykur og ávöxtur í nefi, jörð og sveppir, súkkulaði í munni, þétt, ágætlega ferskt, tannískt.
2.799 krónur. Góð kaup.