Það kann að virka skrýtið að blanda rauðum og hvítum þrúgum saman og vissulega er ekki mælt með því að menn reyni að blanda rauðum og hvítum vínum saman í heimahúsi. Nokkur af þekktustu vínum heims eru hins vegar slíkar blöndur. Kampavín er augljósasta dæmið en einnig má nefna dæmi um rauðvín á borð við Cote Rotie í Frakklandi og Chianti Classico á Ítalíu þar sem leyfilegt er að nota smávægilegt hlutfall af rauðum þrúgum í bland við þær hvítu.
Ástralir hafa náð miklum árangri í ræktun þrúgunnar Syrah, sem að þeir nefna Shiraz. Í þessu víni er hún blönduð hvítvínsþrúgunni Viognier (um 10%) rétt eins og sumir framleiðendur í því magnaða franska héraði Cote Rotie gera.
Vínið er dökkfjólublátt, angan af fjólum, rósum, sólberjum og kirsuberjum í bland við nýmalað kaffi og krydd en jafnframt má greina örlitla apríkósu úr Viognier-þrúgunni. Mjúkt og feitt í munni, ágengur rauður ávöxtur og mjög mjúk tannín. Athyglisvert og virkilega gott vín.
2.490 krónur. Góð kaup.