Willm Pinot Gris Reserve 2012

Pinot Gris vín frá Alsace í norðausturhluta Frakklands geta tekið á sig margvíslegar myndir. Þegar þau eru góð eins og þetta hér eru þau fjölhæf og yndisleg matarvín, sem hægt er að para við ýmsan mat, fisk jafnt sem ljóst kjöt. Ávöxturinn í nefi hefur sætt, örlítið framandi og seyðandi yfirfbragð, hunangshjúpaður, þarne eru ferskjur og apríkósur, einnig sítrus, græn epli og krydd. Þykkt, ávöxturinn djúpur, vínið er þurrt þó sæta sé í ávextinum og sýra gefur því þægilegan léttleika.

2.799 krónur. Frábær kaup.

Deila.