Argentínska vínhúsið Las Moras er með aðsetur í Tulum-dalnum, helsta víngerðarsvæði héraðsins San Juan. Svæðið er ekki eins þekkt og Mendoza en engu að síður ákjósanlegt til vínræktar, þurrt og sólríkt í rúmlega 600 metra hæð yfir sjávarmáli.
Las Moras Cabernet Sauvignon 2011 er afskaplega ungt með björtum, hressilegum, dökkum berjasafa, sólberjum og bláberjum, milt, mjúkt með afskaplega hófstilltum vott af reyk. Tæknilega vel gert og stílhreint.
1.590 krónur. Mjög góð kaup.