Vínið Rompicollo frá Vínhúsinu Poggio al Tufo (sem er í eigu Tommasi) kemur frá Toskana, nánar tiltekið svæðinu Maremma á vesturströnd héraðsins. Þetta er vín einni ekru, Rompicollo. Heimaþrúgan Sangiovese er í ríkjandi hlutverki (60%) í bland við Cabernet Sauvignon.
Nokkuð ljóst, rautt út í rauðblátt á lit. Angan af rauðum berjum, kirsuber, kirsuberjasultu, fíkjum, lyngi og kryddum. Milt, mild tannín, nokkuð sætur, kryddaður ávöxtur, örlítill viður.
2.599 krónur.