Tommasi Amarone 2010

Amarone-vínin eru alveg sér á báti, þessi vínstíll frá Veneto á Ítalíu er einstakur og á síðustu árum höfum við séð fullt af vínum sem reyna að gera „mini“ útgáfur af Amaraone undir heitunum Appassimento og Ripasso. Amarone er hins vegar stóri bróðirinn, vín gerð úr þrúgum sem eru þurrkaðar áður en þær eru pressaðar sem gefa þeim þessa sérstöku dýpt og kraft.

Tommasi Amarone er flott eintak, sæt rauð berjaangan í nefi, töluvert krydduð. Kirsuber, plómur, sveskjur, nokkur negull og tóbak. Sætur, áfengur og þykkur ávöxtur í munni og þétt tannín. Vín sem þolir ansi miklar sósur og bragðmikið kjöt. Rjúpan og gæsin koma upp í hugann.

6.399 krónur. Mjög góð kaup.

Deila.