Bodegas Muga er eitthvert besta dæmið um vínhús sem framleiðir hefðbundin, stórkostleg Rioja-vín. Muga-fjölskyldan hefur framleitt vín í Haro í Rioja Alta frá árinu 1932 og þessi vín eru í hugum margra allt það sem Rioja á að snúast um. Stór, mikil og eikuð vín sem eru fullkomin með góðri nautasteik.
2010 hefur verið flokkaður sem stórkostlegur „excelente“ árgangur í Rioja og þau vín sem við höfum smakkað hingað til frá góðum framleiðendum standa algjörlega undir því. Það þarf því ekki að koma á óvart að Muga brilleri. Dökkt, kröftugt og hrikalega vel uppbyggt og balanserað – Bordeaux-legur strúktúr þar sem tannín gefa því mikinn strúktúr, í bland við hitann úr Miðjarðarhafsvínum, ávöxturinn dökkur, sólber, vel þroskuð kirsuber og skógarber, örlítið kryddað með reyk og kaffi. Gefið því tíma til að opna sig og njótið með nauti eða hreindýri. Hvers vegna ekki nautalund Wellington.
3.999 krónur. Frábær kaup.