Chateau Brown-Lamartine 2009

Brown-Lamartine er „þriðja“ vínið frá Chateau Cantenac-Brown, sem einnig framleiðir Brio. Það kemur af fimm hektara skika af Cantenac ekrunni sem fellur ekki undir svæðið Margaux heldur „appelation Bordeaux“.

Vínið er framleytt í sömu víngerð og af sama teymi og Grand Cru-vínið og Brio. Það er yngra, léttara og ávaxtaríkara en „stóru“ vínin, algjörlega yndislegt núna. Bjartur berjaávöxtur, rauður, vindlakassi, kaffi, vel uppbyggt, strúktúrerað Bordeaux á hrikalega flottu verði miðað við gæði. Naut, lamb, mild vilibráð, önd.

2.999 krónur. Frábær kaup.

Deila.