Pares Balta vínin frá Cusine-fjölskyldunni katalónsku er ávallt heillandi, sjarmerandi og persónuleg og ekki spillir fyrir að fjölskyldan leggur gífurlega áherslu á eins náttúrulega og lífræna ræktun og framleiðslu og kostur er á.
Mas Petit er eitt af einfaldari vínum hússin, yndislega ávaxtaríkt, hrein angan af skógarberjum, örlítil vanilla úr eik í munni tært, ávaxtaríkt með þægilegu tannísku biti og sýru.
2.499 krónur. Frábær kaup.