Chateau Musar 2007

Chateau Musar er vín sem er erfitt að bera saman við önnur, þó svo að það væri ekki nema vegna þess að það kemur úr Beeka-dalnum í Líbanon. 2007 árgangurinn ber þess merki að þetta var hitabylgjuár, í nefinu er þessi hefðbundna mykja og hesthús en líka lakk, bón,soja,  ávöxturinn í munni svartur, þurkkaður, sýrumikill,langur, tannín afskaplega mjúk. Chateau Musar er vín sem að fólk annað hvort elskar eða hatar, það getur engum staðið á sama, við elskum það og segjum að þetta sé fullkomið vín með mildri íslenskri villibráð.

5.199 krónur. Frábær kaup.

Deila.