Nederburg Manor House Sauvignon Blanc 2014

Það er löng og gamalgróin hefð fyrir vínrækt á Höfðasvæðinu í Suður-Afríku. Vínhúsið Nederburg á sögu sem nær aftur til ársins 1791 og er í dag með stærstu og þekktustu vínhúsum landsins og á nú ekrur á ýmsum stöðum í landinu. Þrúgurnar í þetta hvítvín koma frá Western Cape en flest af þekktustu undirsvæðum suður-afrískrar víngerðar er að finna á því stóra svæði.

Manor House Sauvignon Blanc er ljóst og tært á lit, grösugt í nefi í fyrstu, smá reykur, eldspýtustokkur, en svo koma suðrænir ávextir, melónur, ástaraldin, limebörkur, góður ferskleiki, þétt og fínt sýra.

2.499 krónur. Mjög góð kaup.

Deila.