Það er ekki algengt að sjá Gewurztraminer frá Chile, jafnvel ekki utan Evrópu. Vínhúsið Cono Sur hefur hins vegar ekki alltaf farið troðnar slóðir og var m.a. fyrsta vínhús Chile til að hefja ræktun á þrúgunni Viognier.
Þetta er afbragðsgóður Gewurztraminer gerður úr þrúgum ræktuðum í héraðinu Bio Bio, sem er með syðstu vínhéruðum Chile og þar sem þetta er suðurhvelið verður loftslagið svalara eftir því sem sunnar dregur.
Þykk, arómatísk angan, suðrænir ávextir, sætur greipávöxtur, lime og blóm, rósablöð. Þurrt, nokkuð þykkt, með þéttri, ferskri og þægilegri sýru. Reynið t.d. með austurlenskum réttum, indverskum, taílenskum, kínverskum, t.d. þessum kjúkling hér.
1.927 krónur. Frábær kaup.