Petit Bourgeois Sauvignon Blanc 2013

Henri Bourgeois er með þekktari vínhúsum Sancerre en framleiðir einnig vín annars staðar í Loire-dalnum. Þetta svæði er eitt unaðslegasta hvitvínssvæði Frakka, þekkt fyrir fersk vín úr þrúgum á borð við Sauvignon Blanc og Chenin Blanc.

Petit Bourgeois er gert úr Sauvignon Blanc þrúgum úr Loire-dalnum og er unaðsleg blanda af nýjaheims og gamlaheims stílnum. Virkilega ferskt, sneisafullt af suðrænum ávexti, sætur limeávöxtur, hvít blóm og svolítið míneralískt. Ferskt og skarpt í munni með yndislegtum ávexti. Sem fordrykkur eða með mat, t.d. grilluðum fiski.

2.699 krónur. Frábær kaup.

Deila.