Navarra er næsta svæði við hið þekkta víngerðarhérað Rioja og það á því ekki að koma á óvart að það er oft ansi áþekkt yfirbragð á vínunum, að minnsta kosti þegar að þrúgan Tempranillo kemur við sögu.
Fortius Tempranillo Roble er eikarlegið rauðvín frá Navarra, hálft ár á amerískri eik,, sem óneitanlega minnir um margt á einfaldan Crianza frá Rioja. Þroskuð rauð ber, kirsuber, kryddað með nokkurri vanillu, gott matarvín.
1.899 krónur. Góð kaup.