Peter Lehmann Art ‘n’ Soul Riesling 2013

Riesling-þrúgunar sem að notaðar eru í þetta hvítvín frá Peter Lehmann koma frá tveimur svæðum í Suður-Ástralíu, annars vegar hinum „svölu“ hæðum í Eden-dalnum og hins vegar af ekrum í Barossa-dalnum.

Ljóst, fölgrænt á lit, fersk, sæt angan, lime, limebörkur og græn epli, brenninetlur, létt og þægilegt, ferskur, sætur ávöxtur. Flottur fordrykkur eða með austurlenskum mat.

1.999 krónur Mjög góð kaup.

Deila.