Domaine Tariquet Cote 2013

Domaine de Tariquet Classic er frá svæði sem að við sjáum sjáldan – Cotes de Gascogne í suðvesturhluta Frakklands, á svipuðum slóðum og Armagnac er framleitt. Vínið Coté er blanda til helminga úr tveimur vinsælustu hvítvínsþrúgum heims, Chardonnay og Sauvignon Blanc.

Fölgrænt, tær angan, nokkuð sítrusmikil, Sauvignon er ríkjandi í nefinu. Vínið er nokkuð grösugt, svolítið skarpt, en þarna er einnig sætur suðrænn ávöxtur, skarpt og fókuserað, fersk sýra, fín fylling.

2.590 krónur. Frábær kaup.

Deila.