Pata Negra Ribera del Duero Reserva 2009

Pata Negra er vínlína úr smiðju eins stærsta vínfyrirtækis Spánar, J. Garcia Carrion og eru vín frá helstu vínhéruðum Spánar framleidd undir merkjum þess. Þau hafa vakið verulega athygli fyrir gæði og nýlega var t.d. Rioja-vínið í línunni valið eitt besta vín árgangsins 2010 undir 25 pundum af breska víntímaritinu Decanter.

Þetta er traust og flott Ribera-vín. Dökkt á lit, þroskuð rauð ber og skógarber í nefi, eik, vanilla og krydd. Vínið er enn ágætlega ungt og sprækt, mjúk tannín, þægilegt kjötvín.

2.599 krónur. Mjög góð kaup.

Deila.