Jim Beam Whiskey Sour kokteilakeppni Barþjónaklúbbsins

Barþjónaklúbburinn og Haugen Gruppen, umboðsaðili Jim Beam, stóðu fyrir Whiskey Sour kokteilakeppni á dögunum. Sextíu keppendur frá 34 veitingahúsum mættu til leiks og er það einhver mesta þátttaka í einni kokteilakeppni hér á landi. Keppnin fór fram á Bryggjunni Brugghúsi og var öll hin glæsilegasta. 8 keppendur hristu í senn og gerði hver um sig tvo drykki fyrir dómnefnd og tveir drykkir fóru út í sal til áhorfenda.

Eftir stigatalningu voru fjórir hæstu keppendur sendir upp á svið aftur í úrslitaumferð. Það fór aðlokum svo að Leó Ólafsson, á Matur og Drykkur stóð uppi sem sigurvegari með drykkinn Angelica Tradition.

Í öðru sæti var Svavar Helgi Ernuson frá Sushi Samba, í þriðja sæti Heiðar Árnason frá Jacobsen og Loftinu og í fjórða sæti Sigrún Guðmundsdóttir frá Hilton Reykjavík Nordica.

 

Deila.