Veitingastaðurinn Hverfisgata 12 tekur þátt í Food and Fun í fyrsta skiptið í ár. Kokkarnir á Hverfisgötu 12 munu starfa við hliðina á danska matreiðslumeistaranum Kristopher Schram sem er yfirkokkur og framkvæmdarstjóri á Bæst í Kaupmannahöfn.
Kristopher útskrifaðist frá The Culinary Institute of America (CIA) árið 2005 og tók þar að auki prófskírteini í bakstri frá Kaliforníu-útibúi CIA.
Að loknu námi hefur hann starfað á háklassa veitingarstöðum útum allan heima, þ.á.m. nokkrum Michelin-stjörnu veitingarhúsum og hefur hann sett mark sitt hvert sem hann hefur komið.
Á árunum 2006 til 2008 vann hann á nokkrum Michelin-stjörnu veitingarhúsum í Kaliforníu, þ.m.t. Terra í Napa-dal sem er þekktur víða um heim. Kristopher starfaði um skeið í Asíu og Ástralíu þar til hann settist að í Danmörku árið 2011. Kristopher hefur síðan starfað náið með Christian Puglisi eiganda Michelin-staðanna Relæ og Manfred í Kaupmannahöfn. Christian var lengi vel einn af aðalmatreiðslumönnum Noma og hefur sent frá sér matreiðslubækur.
Meginuppistaða matseðils Hverfisgötu 12 og Kristophers á Food and Fun eru sérvalið þurrkað kjöt og súrdeigspizzur.
- Sérvalið þurrkað kjöt og pylsur frá Bæst
- Heimagerður „stracciatella“ ostur úr íslenskri mjólk.
- Reyktar lambaþynnur, saltfiskur, saltbökuð seljurót.
- Bæst súrdeigspizza með heimagerðri Nduja pylsu.
- Vanilluís með epla- og mysukaramellu og íslensku sjávarsalti
Hráefnið fyrir viðburðinn er sérstaklega innflutt fyrir hátíðina sem stendur yfir frá 2.-6. mars næstkomandi.
Borðapantanir í síma eða tölvupóst: 437 0203 og hinrik@kexhostel.is