Í þorpinu Sancerre (og nágrannaþorpinu Pouilly Fumé) eru framleidd vín sem að við ættum að gefa miklu meiri gaum. Þarna innst í Loire-dalnum eru ræktuð einhver bestu Sauvignon Blanc-vín veraldar, vín sem þar að auki eru lystilega matvæn.
Vínhús Joseph Mellot er eitt af þeim gamalgrónu á svæðinu og rekur sögu sína aftur til ársins 1513. Þetta er dúndur Sancerre, Klassískur, míneralískur, grösugur, með lime og sítrónu, kryddjurtir eru þarna líka. Vínið er ferskt með skarpri og flottri sýru, lengd og dýpt í ávextinum.
90%
3.490 krónur. Frábær kaup. Frábært matarvín.
-
9