Public House er einn af heitustu stöðunum í Reykjavík þessa dagana, gastro pub sem býður upp skemmtilegan matseðil þar sem íslensk hráefni eru elduð með asískum, ekki síst japönskum blæbrigðum. En Villi á barnum á Public House setti líka saman tvo kokteila í tilefni af hátíðardegi Íra, þetta eru „tveir heilagir“, hér má sjá St. Vilhjálm og hér er það St. Arnar.
- 40 ml Jameson’s Irish Whiskey
- 20 ml Cherry Infusion Sake
- 20 ml Maple og engifer-síróp
- eggjahvíta
- dass af Bittermens Hot Grapefruit Bitter
Hristið með klaka. Síið í glas.


