Það er ákaflega spennandi þegar skapandi fólk fær að ráða ferðinni og búa til bjór. Bruggarar Borg hafa verið duglegir að verða sér úti um sambönd og gera bjór með öðrum brugghúsum. Má þar nefna 14-2 White Stout sem gerður var með Norrebro Brughys og Smuguna sem var samvinnuverkefni þeirra og norska brugghúsins 7 Fjell.
Í þetta skiptið er það Arizona Wilderness en þeir mættu galvaskir til Íslands með fullt af bjór og tóku yfir Skúla Craft Bar í eina kvöldstund. Það er óhætt að segja að Arizona Wilderness sé svokallað „cult“ brugghús. Ratebeer.com útnefndi þá sem besta nýja brugghús ársins 2014 og bjór þeirra hefur verið ákaflega eftirsóttur vestanhafs. Ein af ástæðunum er án efa að bjórinn er hvergi fáanlegur utan veggja brugghússins og eykur það enn á dulúðina.
Arizona Wilderness er örbrugghús, staðsett í gömlu verslunarrými í borginni Gilbert í Arizona. Bruggararnir eru þeir Patrick Ware og Jonathan Buford, en þeir félagar kynntust í áfengisverslununni Total Wine þar sem sá fyrrnefndi var að vinna. Þeir deildu sama eldmóð og ákváðu að leggja allt að veði og stofna brugghús. Patrick hætti að vinna í áfengisversluninni og Jonathan hætti ferli sínum sem gluggaþvottamaður. Tæpt stóð á að brugghúsið myndi standa undir sér vegna fjárhagserfiðleika en að sögn Jonathans voru þeir mánuði frá gjaldþroti þegar útnefning Ratebeer sem besta nýja brugghús ársins barst þeim. Það breytti öllu og nánast á einni nóttu voru þeir heitasta nafnið í bransa sem telur yfir 5.000 brugghús, bara í Bandaríkjunum.
Það var því ekki leiðum að líkjast þegar þetta samvinnuverkefni Borgar og AZ Wilderness hófst. Útkoman var Saison með bláberjum að norðan og brettanomyces geri. Útkoman var sérlega góð, fagur fjólublár litur með ljós rauðum haus, angan af sveit, berjum, útihúsum og örlitlu ryki en karakter gersins leynir sér ekki í lykt. Á tungu er hann þurr eins og við var búast, örlítil sýra með keim af bláberjahýði. Afar bragðgóður bjór sem hefði líklegast haft gott af meiri sýru, en hér er engu að síður afbragðs gott öl á ferð.
Hér er afbragðs Saison á ferð og hefur tekist vel til. Einnig er gaman að sjá tilraunir með villt ger eins og brettanomyces hjá íslensku brugghúsi. Vonandi verða tilraunirnar fleiri. Ekki er mikið eftir af þessum bjór í vínbúðunum en það borgar sig að kaupa til að geyma, þar sem gerið og Saison bjórstíllinn henta ákaflega vel til geymslu.