Cote de Roses er auðvitað ákaflega viðeigandi nafn á rósavíni en þetta vín úr smiðju Gérard Bertrand kemur af ekrum við Miðjarðarhafsströndina í Narbonne í Suður-Frakklandi. Það eru þrjár helstu þrúgur svæðisins í blöndunni, Grenache, Syrah og Cinsault.
Flaskan vekur strax athygli, hún er rósalöguð, flöskubotninn eins og rós í blóma og með glertappa. Vínið er laxableikt, út í appelsínugult með angan af sumarberjum, sítrus og blómum, já það eru rósir þarna í nefinu og líka vottur af jasmín. Í munni þétt, ferskt með flottum berjaávexti. Virkilega flott rósavín.
80%
2.599 krónur. Frábær kaup.
-
8