Nederburg Manor House Sauvignon Blanc 2015

IMG_1350Manor House mætti þýða sem óðalssetur og setrið sem þetta vín er kennt við, óðalssetur Nederburg í Stellenbosch hefur um aldabil verið í lykilhlutverki í víngerð Suður-Afríku.

Þetta er nýjaheims-Sauvignon Blanc út í gegn. Ávöxturinn er suðrænn og sætur, þroskaðar melónur og ferskjur, greipaldin og ástaraldin en einnig nýslegið gras og jurtir, sem eru þó í aukahlutverki gagnvart ávextinum. Mýktin ræður ríkjum í munni, langur, sætur ávöxtur en nægileg sýra til að viðhalda góðum og flottum ferskleika.

80%

2.499 krónur. Frábær kaup. Ekta vín til að sötra á pallinum í sumarsólinni eða bjóða fram með réttum með smá asísku ívafi í bragðinu.

  • 8
Deila.