Willm Pinot Gris 2014

IMG_1605Vínhúsið Willm er á vínleiðinni eða Route du vin á milli Strassborgar og Colmar í Alsace í Frakklandi, nánar tiltekið í smábænum Barr. Willm-fjölskyldan, sem þá rak veitingahús í Barr, stofnaði víngerðina 1896 og náði fljótt undraverðum árangri í útflutningi.

Þetta er virkilega ljúffengt Pinos Gris, ávöxturinn er tær og safaríkur, sítrus, niðursoðnar perur og ferskjur út í sæta, suðræna ávexti á  borð við ananas, hvít blóm. Ávöxturinn er þykkur, vínið feitt en engu að síður ferskt og mun þurrara en sætleikinn í nefinu gefur til kynna. 2014 var prýðisgóður árgangur í Alsace, klassísk vín með fínum sætleika í ávexti og góðri sýru.

2.699 krónur. Frábær kaup. Hálf auka stjarna fyrir hlutfall verðs og gæða.

  • 9
Deila.