Hvítvínið frá Baron de Ley hefur löngum verið í miklu uppáhaldi hjá okkur og var á sínum tíma valið sem bestu hvítvínskaupin í vínbúðunum. Það stendur enn fyllilega undir því, þetta hvítvín frá Rioja er vín sem gefur alveg ótrúlega mikið fyrir peninginn.
Þrúgan heitir Viura og er ein af þessum spænsku hvítvínsþrúgum sem að virkilega er þess virði að gefa gaum. Fölgrænn litur í glasi, í nefi þroskuð gul epli og niðursoðnar perur, sítrus, lime og kryddjurtir, smá salvía þarna. Þykkt og feitt, með yndislegum ferskleika.
80%
1.699 krónur. Frábær kaup. Líklega bestu kaupin í þessum verðflokki.
-
8