Montecillo Reserva 2010

IMG_1519Árgangurinn 2010 var alveg hreint afbragðsgóður í Rioja og við höfum notið margra vína frá honum á síðustu árum. Vínhúsin í Rioja geyma vínin hins vegar mislengi áður en þau fara í sölu og því erum við sem betur fer enn að fá á markaðinn Reserva-vín úr árganginum eins og þetta hér, frá Montecillo, vínhúsi Osborne-fjölskyldunnar. Lesa má nánar um vínhúsið hér.

Þetta Reserva-vín er farið að sýna örlítinn byrjandi þroska í dökkum litnum, það eru dökkir ávextir í nefinu, þroskuð kirsuber, nokkuð kryddað, vanilla, reykur, þykkt og safaríkt í munni, míneralískt, mjög vel gert.

80%

2.599 krónur. Frábær kaup. Fyrir rautt kjöt, lamb og naut.

  • 8
Deila.