Chateau Bonnet er staðsett á svæðinu Entre-deux-Mers eða „milli tveggja vatna“ í Bordeaux. Það er í eigu André Lurton, eins af helstu frammámönnum héraðsins undanfarna öld (hann er fæddur 1924). Og þó svo að margar glæsilegar hallir á þekktustu svæðum Bordeaux séu í veldi Lurton-fjölskyldunnar þá hefur Bonnet ákveðna sérstöðu því þar er heimili ættarföðursiins André.
Blandan í víninu er Merlot og Cabernet til helminga, og þetta er fínn einfaldur Bordeaux með góðu jafnvægi á milli ávaxtar og eikar. Það er þurrt, dökkrauður berjaávöxtur, eikin er nokkuð áberandi í byrjun en rennur síðan saman við ávöxtinn, tannín nokkuð hörð.
70%
2.850 krónur. Góð kaup.
-
7