Þetta er ein af þessum flöskum sem að maður þarf að horfa á í smá tíma til að átta sig á hvað hún er. Við fyrstu sýn virðist þetta vera (svona út frá sjónrænum skilaboðum á flöskumiða) vín sem ætla mætti að kæmi frá því sem stundum er kallað nýji-heimurinn. Þegar nánar er rýnt í textann kemur hins vegar í ljós að vín er frá einu af elstu svæðum gamla heimsins, Púglíu syðst á Ítalíu úr smiðju sænska vínfyrirtækisins Mare Magnum. Einfalt og þægilegt Primitivo-vín, sætur og kryddaður kirsuberjaávöxtur, smá leður í nefi, mjúkt með sætum ávexti.
60%
2.380 krónur.
-
6