Allt frá því að fyrsta Don Melchor-vínið leit dagsins ljós árið 1988 hefur það verið ekki bara eitt besta Cabernet Sauvignon-vín Chile heldur einnig eitt af merkari Cabernet-vínum sem almennt eru framleidd. Nánar um þetta merka vín má lesa með því að smella hér.
Tveir árgangar af Don Melchor eru nú fáanlegir í vínbúðunum og þetta eru tveir af þeim betri sem hafa verið framleiddir, 2006 og 2007, hver með sinn karakter. Byrjum á 2006, vín sem fékk 95 Parker-punkta.
Don Melchor 2006, dökkur sólberjaávöxtur, þroskaður, mjúkur sem er farinn að víkja fyrir leðri og tóbaki í nefi. Míneralískt og kröftugt, mild mynta í bakgrunni, sætur sedrusviður. Þétt og þykkt, sætur og seiðandi ávöxtur, mjúkt. Endist alveg áratug eða tvo í viðbót.
7.999 krónur. Frábær kaup.
-
10