Campo Viejo Gran Reserva 2010

img_3432Campo Viejo er eitt af stærstu vínhúsum Rioja og var lengi í eigu Domecq-fjölskyldunnar. Vínin eru yfirleitt nokkuð klassísk og ágætlega gerð. Hér er það Gran Reserva-vínið frá 2010 en það var afbragðs gott ár í Rioja sem að endurspeglast vel í þessu víni.

Dökkt og eikað, í nefi kakó, tóbakslauf, ristaður viður, sultaður jarðaberja og kirsuberjaávöxtur, kryddað og þétt, mjúk og fín tannín. Vel gert vín.

90%

2.799 krónur. Frábær kaup.

  • 9
Deila.