Santa Cristina er með eldri vörumerkjum í ítalskri vínframleiðslu en Pinot Grigio-vínið í línunni er hins vegar nýtilkomið en í það eru notaðar þrúgur ræktaðar af svæðinu sem skilgreint er sem delle Venezie en það nær til hluta héraðanna Friuli, Trentino og Veneto.
Ljósgult með ferskri og þægilegri ávaxtaangan, sætar ferskjur og þroskuð gul epli, mild aprikósuangan, melónur. Ágætlega þéttur, sætur og ferskur ávöxtur í munni.
70%
1.999 krónur. Mjög góð kaup. Reynið til dæmis með austurlenskri matargerð.
-
7