Cecchi Natio Chianti Organic 2015

Það er orðið algengt að vín séu vottuð sem lífrænt ræktuð eða að vínræktin sé lífefld. Margir framleiðendur beita jafnframt lífrænum og algjörlega náttúrulegum aðferðum þó svo að þeir sjái engan sérstakan tilgang í að sækjast eftir vottun um það. Málið flækist hins vegar þegar kemur að þeim sem eru vegan. Vínið er vissulega í sinni tærustu mynd vegan, þ.e. er einungis gerjaður þrúgusafi. Þetta er hins vegar ekki svo einfalt. Eitt af lokaskrefum víngerðarinnar áður en víninu er tappað á flöskur er að stabílísera vínið og hreinsa úr því ensími og próteín sem verða til við víngerðina. Oft eru notaðar „dýraafurðir“ s.s. eggjahvítur eða mjólkurpróteín við þetta skref.

Það er hins vegar einnig hægt að gera þetta með vegan-aðferðum og þetta vín hér frá Toskana-húsinu Cecchi er dæmi um vín sem er ekki einungis lífrænt heldur einnig vegan. Og alveg óháð því bara hið fínasta Chianti.

Dökkur kirsuberjaávöxtur og krækiber, lyng og vottur af lakkrís, ungt, góður þéttur ávöxtur, tannískt.

 

70%

2.290 krónur. Mjög góð kaup.

  • 7
Deila.