Fleur du Cap Chardonnay 2015

Fleur du Cap er eitt af vínhúsunum sem tengjast Bergkelder, einhverri merkilegustu stofnun suður-afríska víniðnaðarins. Vínhús og vínkjallari sem byggður var við rætur fjallsins Papegaaiberg skammt frá Stellenbosch. Kjallarar Bergkelder teygja sig inn í fjaliið og eru vinsæll áningarstaður ferðamanna.

Þetta er hnökralaust, þægilegt og vel gert Chardonnay-vín, suðræni ávextir ríkjandi í nefi, sítrusbörkur, ananas, melónur, vínið mjúkt og milt í munni, þægilega ferskt.

70%

1.999 krónur. Mjög góð kaup.

  • 7
Deila.