Barþjónaklúbbur Íslands í samvinnu við Himbrimi Gin hélt á dögunum kokteilkeppni undir yfirskriftinni „Inspired by Himbrimi“.
Alls kepptu 18 barþjónar og vakti það sérstaka athygli að 6 af þessum 18 keppendum voru kvenkyns sem er mun hærra hlutfall en sést hefur í keppnum sem þessum.
Margir keppendur voru að stíga sín fyrstu spor á keppnisferlinum og kom að sögn aðstandenda á óvart hversu hátt gæðastig var á keppninni enda greinilegt að keppendur voru vel undirbúnir.
Í fyrsta sæti var Jóhann Helgi Stefánsson frá Sushi Social með drykkinn sinn Gljúfrabotn.
Í öðru sæti var Jónmundur Þorsteinsson frá Apótekinu með drykkinn Heaven Howler.
Og í þriðja sæti var Ivan Svanur Corvace frá Geira Smart með drykkinn Snifter.
Í dómnefnd voru Alba Hough sem er margfaldur Íslandsmeistari



