Miguel Torres var einhver mesti frumkvöðull síðustu aldar í spænskri víngerð og er enn með helstu framleiðendum landsins. Vínið Gran Vina Sol var þannig til dæmis eitt af fyrstu spænsku Chardonnay-vinunum sem var gert með gerjun í eikartunnum.
Gran Vina Sol stendur enn fyrir sínu, blanda úr Chardonnay og Katalóníu-þrúgunni Parellada. Fölgult með ferskri angan af sítrus, gulum eplum og þroskuðum perum, smá vanilla úr eikinni, ferskt og fókuserað, fín fylling. Matarvín.
90%
2.598 krónur. Frábær kaup. Með skelfisk, jafnvel humar.
-
9