Ekrur stóru vínhúsanna á Médoc-skaganum í Bordeaux eru miklar eignir og flest húsin framleiða fleira en eitt vín. Efst trónar Chateau-vínið en annað vínið eða það sem Frakkar kalla „deuxiem vin“ eru yfirleitt gerð úr þrúgum af yngsta vínviðnum á ekrunum. Oftar en ekki eru þetta einhver bestu kaupin sem hægt er að gera í betri Bordeaux-vínunum og mörg af þessum vínunum hafa orðið betri og betri með árunum eftir því sem húsin keppast við að gera Chateau-vínið stærra og meira. Þessi vín eru líka tilbúin til neyslu fyrr en stóru vínin, jafnvel 3-5 ára gömul.
Brio de Cantenac er eins og nafnið gefur til kynna annað vínið frá Chateau Cantenac-Brown í Margaux. Cantenac-Brown fer ekki fram fram hjá neinum sem þarna ekur um sveitir, tignarlegt og mikið setur í Tudor-stíl. Húsið er flokkað sem 3éme Grand Cru Classé samkvæmt flokkuninni frá 1855.
Blandan í Brio er klassísk Médoc-blanda, 65% Cabernet Sauvignon, 30% Merlot og afgangurinn Cabernet Franc. Þetta er líka skólabókar Médoc. Dökk ber, þroskuð sólber, smá krækiber í nefi, eikin mild, örlítið reykuð, vottur af pipar og tóbaklaufum. Þétt og fín tannín, langt. Svona vínum á að umhella til að fá sem mest úr þeim.
4.998 krónur. Frábær kaup. Stórt vín á fínu verði. Með nautalundum Wellington eða önd.
-
9