Podere la Berta Solano Sangiovese Superiore 2015

Solano er Sangiovese-vín frá Emilia Romagna en vínhúsið Podere la Berta er í eigu Poggiano-fjölskyldunnar, þeirrar sömu og á hið frábæra vínhús Felsina í Chianti í Toskana. Rétt eins og Chianti-vínin er þetta vín úr þrúgunni Sangiovese og ræktunin er lífræn. Þetta er dökkt og nokkuð kröftugt vín, töluvert meira um sig en systurvínið með bláa miðanum frá sama vínhúsi. Í nefi þroskaðar plómur, krydd, jafnvel vottur af negul og lakkrís. Það  er þykkt, með þægilegum, öflugum tannínum,

90%

2.995 krónur. Frábær kaup.

  • 9
Deila.