Podere la Berta Sangiovese 2015

Poggiano-fjölskyldan sem á og rekur hið þekkta vínhús Fattoria di Felsina í Toskana kemur upphaflega frá héraðinu Emilia Romagna. Fyrir tæpum áratug lét hún þann draum rætast að framleiða einnig vín á gömlu heimaslóðunum er hún festi kaup á vínhúsinu Podere la Berta. Þetta er lífrænt ræktað Sangiovese-vín (sama þrúga og suður í Chianti), nokkuð dökkt á lit með þroskuðum, nokkuð krydduðum og allt að því sultuðum, reyktum ávexti, rauð ber ríkjandi, ekki síst kirsuber. Áferðin mjúk og þægileg, ágætlega langt og kryddað, með kröftugri, ferskri sýru. Matarvín.

80%

2.395 krónur. Frábær kaup. Af hverju ekki með einum af þekktari réttum Emilia Romagna, Spaghetti Bolognese.

  • 8
Deila.