Campo Viejo Reserva 2012

Campo Viejo er eitt af þessum klassísku Rioja-vínum sem varla þarf að kynna, það hefur verið hluti af vínúrvalinu hér eins lengi og maður man. 2012-árgangurinn er með betri Reserva-vínum frá Campo Viejo í nokkur ár, virkilega vel gert – og dæmigert – Rioja. Þykkur og kjötmikill, dökkrauður ávöxtur, þægileg og mjúk eik, vanilla og tóbakslauf. Þægilega mjúkt með undirliggjandi krafti, tilvalið vín með rauðu kjöti.

80%

2.299 krónur. Frábær kaup.

  • 8
Deila.