Lamothe Vincent Héritage 2016

Það var sú tíð á árunum eftir hrun að við töluðum um Lamothe-Vincent sem frábæran „kreppu-Bordeaux“. Kreppan er auðvitað löngu búin og eftir situr að Lamothe-Vincent stendur alveg fyrir sínu og er bara ansi góður Bordeaux í sínum flokki. Vínið er flokkað sem Bordeaux Superieur og Merlot er ríkjandi fram yfir Cabernet. Liturinn er fjólublár og angan í nefi einkennist af bláberjum, bláberjalyngi og sólberjum, berin sæt og þægileg, eikin mild og áferðin mjúk, það hefur fína fyllingu, ferskt og gefandi matarvín.

80%

2.499 krónur. Frábær kaup. Með lambakjöti og önd.

  • 8
Deila.