Ítölsku Prosecco-freyðivínin hafa notið mikilla vinsælda á síðustu árum – jafnt austanhafs sem vestan. Það má rekja til þess að þau eru oftar en ekki þægileg og tiltölulega ódýr og auk þess ein af uppistöðunum í hinum vinsæla drykk Aperol Spritz.
La Marca er ágætis Prosecco, eins og önnur freyðivín svæðisins úr Glera-þrúgunni, liturinn ljós og vínið freyðir þétt og þægilega. Í nefinu græn epli og sítrus, hvít blóm, ferskt með örlitlum vott af sætu.
70%
1.999 krónur. Mjög góð kaup. Fyrir sólríka sumardaga.
-
7