
Outer Limits mætti þýða sem „við ystu mörk“ og vísar til þess að þrúgurnar eru ræktaðar á ekrum á jaðarsvæðum vínræktarinnar í Chile. Þetta er nýleg lína frá Montes og Cinsault þrúgurnar í þessu rauðvíni koma frá Valle de Itata í héraðinu Bio Bio, sem er um 500 kílómetra suður af Santiago. Fagurrautt, fókuseraður, skarpur, þægilega beiskur rauður ávöxtur, lakkrís, í munni þurrt, ferskt og mjög safaríkt.
80%
3.299 krónur. Frábær kaup.
-
8