
Bodegas Marta Maté er vínhús í Ribera del Duero á Spáni sem þau Marta Castrillo og Cesar Maté stofnuðu árið 2008. Þau voru ekki alveg ókunn víngerð því að áður höfðu þau vakið athygli fyrir einnar ekru vínið Primordium sem einungis var framleitt í mjög litlu magni (um þrjú þúsund flöskur árlega). Ekrur Marta Maté eru nyrst í héraðinu í um 900 metra hæð yfir sjávarmáli og áhersla þeirra Mörtu og Cesars er á sem náttúrulegasta ræktun og lágmarks inngrip í vínræktinni.
Þetta er afskaplega fágað og fínlegt vín – ekki síst af Ribera del Duero að vera. Þau eru yfirleitt töluvert meiri vöðvabúnt en frændsystkinin frá Rioja, þetta vín minnir hins vegar í fínleikanum og elegansinum meira á flottan Rioja. Ávöxturinn er dimmrauður, þroskuð kirsuber og jarðarber, sætur viður með mildri vanillu, nokkuð kryddað, míneralískt. Það er sprækt og mikið um sig, massívt með fínlegum og flottum tannínum.
3.924 krónur. Frábær kaup. Þetta er vín sem gefur mjög mikið fyrir peninginn.
-
9